JURTALITUNARNÁMSKEIÐ
2. júní, daginn eftir forsetakosningarnar, verður jurtalitunarnámskeið í Hespuhúsinu. Það byrjar kl. 13 og er til ca 17:30. Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriðin í jurtalitun frá upphafi til enda, fjallað um söfnun jurta og litunarsöguna frá landnámi. Námskeiðið kostar 20000 kr. á mann og innifalið er kennsluhefti með prufum, ein hespa að eigin vali af námskeiðinu, kaffi og kaka. Gúmmíhanskar og svuntur eru á staðnum. Best er að koma í þægilegum vinnufötum sem má skíta út og þægilegum skóm. Bókanir: hespa@hespa.is, vinsamlegast gefið upp símanúmer..
Nýjustu færslurnar
Aukaopnun Sunnudagur 6. ágúst
Það verður opið í dag sunnudaginn 6. ágúst vegna verslunarmannahelgarinnar, [...]
Prjónamorgunn í Hespuhúsinu laugardaginn 14. janúar
Laugardaginn 14. janúar klukkan 10 þá verður prjónamorgun í Hespuhúsinu. [...]
Aðventan í Hespuhúsinu
Í vetur er opið á laugardögum á vinnustofunni frá klukkan [...]
Starfsemin í Hespuhúsinu
Hespuhúsið er jurtalitunarvinnustofa. Ég jurtalita einband og léttlopa eins og [...]
Hespuhúsið – vinnustofan
Í upphafi var ég að lita í eldhúsinu heima hjá [...]