Persónuup­plýsingar

Hespuhúsið meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu hespa.is í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga á hverjum tíma. 

Notkun vefsíðu

Þessi vefsíða notar kökur (cookies) til að gera reynslu þína betri. Með því að halda áfram notkun vefsins staðfestir þú samþykki þitt fyrir því, en þú getur sagt þig frá þess konar notkun.

Vafrakaka (e. Cookie) er lítil textaskrá sem vafrinn vistar í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir þennan vef. Upplýsingarnar í kökunni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu og þær upplýsingar til að bæta vefinn, þjónustuna o.fl.

Með því að samþykkja notkun á vafrakökum heimilar þú vefnum m.a.

  • að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður og sníða þá leit, þjónustu, ofl. í samræmi við fyrri notkun og stillingar
  • að safna saman tölfræðilegum upplýsingum sem notaðar eru til gefa innsýn til að bæta vefsvæðið og þjónustuna
  • að birta notendum auglýsingar
  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um vefinn

Við notum Facebook og Instagram til að mögulega birta auglýsingar til notenda sem heimsótt hafa vefsvæðið en það er gert án þess að notast við persónugreinanlegar upplýsingar.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Meðferð persónuupplýsinga

Mögulegt er að ég safni persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, kennitölu, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér, skráningu á póstlista eða vegna annarra samskipta við þig. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té eða kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við lög 90/2018 um persónvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð ESB nr. 2016/679.

Ég legg mig fram um um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Óskir þú frekari upplýsingar eða viljir láta eyða gögnum um þig hafðu þá samband við hespa@hespa.is